Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:45:58 (2424)


[17:45]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Þessi fjárveiting er einfaldlega til þess að heimamenn hafi eitthvað á bak við sig til að gera samning um verkið. Svo einfalt er það mál. Ef fjárveiting fellur niður til þessa verkefnis þá draga heimamenn auðvitað sínar ályktanir af því.