Félagsleg aðstoð

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 15:12:36 (2685)


[15:12]
     Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 313 frá meiri hluta heilbr.- og trn. varðandi frv. til laga um félagslega aðstoð. Undir það rita Gunnlaugur Stefánsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig Pétursdóttir og Sigríður A. Þórðardóttir.
    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frumvarp til laga um félagslega aðstoð samhliða frumvarpi um almannatryggingar, 83. máli, og vísast til almennrar umfjöllunar í nefndaráliti með því frumvarpi.
    Hér er um samtengd mál að ræða. Við ræddum fyrr um almannatryggingar og þetta eins og greinilega kom fram í umræðum um það mál.
    Meiri hluti nefndarinnar mælir með samþykkt þessa frumvarps með breytingum sem gerðar eru tillögur um á sérstöku þingskjali. Jafnframt flytur minni hlutinn tillögur um breytingar á sérstöku þingskjali, en styður þó þær breytingartillögur sem meiri hlutinn flytur. Þær eru eftirfarandi:
    Heilbr.- og trn. flytur sameiginlega eftirfarandi brtt. sem ég mun gera örstutta grein fyrir.
    1. Lagt er til að svigrúm til greiðslu umönnunarbóta í 4. gr. verði aukið þannig að heimilt verði að greiða framfærendum þær enda þótt barn dveljist um stundarsakir á sjúkrahúsi.
    Þá er lögð til sú breyting við 4. gr. að svæðisstjórnir um málefni fatlaðra fjalli einungis um umönnunarbætur til framfærenda fatlaðra en að Tryggingastofnun ríkisins sjái alfarið um afgreiðslu umönnunarbóta til framfærenda annarra barna sem ákvæðið tekur til. Breytingin, sem hér er gerð tillaga um, er í samræmi við reglugerð nr. 150/1992, um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og sjúkra barna.
    2. Eðlilegt þykir að í 13. gr. verði kveðið sérstaklega á um að frumvarp til laga um almannatryggingar eigi við um kærurétt til tryggingaráðs og um hækkun bóta þegar ákvæði frumvarps um félagslega aðstoð eru annars vegar. Enda þótt almenn tilvísun sé í 1. mgr. 13. gr. frumvarpsins þykir rétt að árétta framangreind grundvallaratriði.
    3. Þá er lagt til að bætt verði í frumvarpið greinafyrirsögnum svo að efnisskipan þess verði greinilegri.
    Að lokum þá vil ég segja að það gilti það sama um þetta mál og hið fyrra, breytingar um frv. til laga um almannatryggingar, að um þetta ríkti góð samstaða við störfin. Við lögðum í þetta þann tíma og þá vinnu sem við töldum að málið krefðist og hv. nefndarmenn tóku virkan þátt í því starfi og vil ég færa þeim öllum sérstakar þakkir.
    Að lokum, virðulegur forseti, legg ég til að þessu máli verði vísað til 3. umr. að lokinni 2. umr.