Afgreiðsla mála á dagskrá

63. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 18:20:47 (2866)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill gjarnan beita sér fyrir því að það megi tryggja að þetta mál komi fyrir á fundinum, en vekur jafnframt athygli á því að þrátt fyrir að veitt hafi verið afbrigði fyrir máli, þá gefur það máli ekki neinn sérstakan forgang fram yfir önnur dagskrármál.