[17:23]
Kristín Ástgeirsdóttir :
Virðulegi forseti. Í þessu frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum fyrir árið 1994 er stefna ríkisstjórnarinnar lifandi komin en hún bitnar ekki síst á grunnskólabörnum, nemendum í framhaldsskólum, ekkjum, áfengissjúklingum og menningarstarfsemi. Þetta er stórbrotin ríkisstjórn sem stendur þannig að málum. Þessi stefna mun bitna á okkur í framtíðinni og verða samfélaginu dýr, því segi ég nei.