Ferill 58. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 58 . mál.


61. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um Viðreisnarsjóð Evrópuráðsins.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hversu mikið fé hafa Íslendingar greitt árlega til Viðreisnarsjóðs Evrópuráðsins á árunum 1988–1993?
    Hversu mikla peninga hafa Íslendingar fengið að láni úr sjóðnum frá stofnun hans?
    Hvenær var síðast sótt um lán og til hvaða verkefnis?
    Til hvaða verkefna hefur lánum frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins verið varið hér á landi?