Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 81 . mál.


84. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um staðfestingu á samningi Sameinuðu þjóðanna gegn ólöglegri verslun með fíkniefni og skynvilluefni.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Verður samningur Sameinuðu þjóðanna gegn ólöglegri verslun með fíkniefni og skynvilluefni, sem gerður var í Vínarborg 1988, staðfestur af Íslands hálfu? Ef svo er, hvenær má vænta þess að tillögur þar um verði lagðar fyrir Alþingi?