Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 178 . mál.


197. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um landgræðslustörf bænda í samvinnu við Landgræðslu ríkisins.

Frá Valgerði Sverrisdóttur.



    Hvernig hefur samstarfi bænda og Landgræðslu ríksins verið háttað á árunum 1992 og 1993 við uppgræðslu heimalanda?
    Hversu margir bændur hafa tekið þátt í slíkum verkefnum?
    Um hve stórt svæði lands er að ræða?
    Hvernig skiptist kostnaður á milli aðila?
    Hver eru áform ráðuneytisins um samstarf bænda og Landgræðslu ríkisins á sviði uppgræðslustarfa á árinu 1994?