Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 257 . mál.


302. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um færslu grunnskólans til sveitarfélaganna.

Frá Ragnari Elbergssyni.



    Telur ráðherra það enn raunhæft að sveitarfélögin geti yfirtekið allan rekstur grunnskólans 1. ágúst 1995?
    Hvaða áhrif hefur niðurstaðan í kosningum um sameiningu sveitarfélaga 20. nóvember sl. á þennan tilflutning að mati ráðherrans og ríkisstjórnar?