Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 544 . mál.


852. Frumvarp til laga


um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.

(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)


1. gr.

    Flutningskostnaður á olíuvörum innan lands skal jafnaður eins og nánar greinir í lögum þessum.
    Jöfnun á flutningskostnaði nær til flutninga á bifreiðabensíni, gasolíu, öðrum olíum og blöndum til brennslu og flugsteinolíu (þotueldsneyti) til innanlandsflugs, þó ekki á olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga, millilandaflugs, erlendra skipa og erlendra flugvéla.
    Jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum nær til flutnings á olíuvörum sjóleiðis frá innflutningshöfnum til annarra hafna á landinu sem geta tekið við olíuvörum með olíuleiðslu úr tankskipi. Jafnframt nær jöfnun flutningskostnaðar til landflutninga með tankbifreið frá næstu innflutningshöfn eða höfn sem getur tekið við olíuvörum frá tankskipi úr olíuleiðslu til verslunarstaða þeirra er hér greinir:
    Hveragerði, Selfoss, Laugarvatn, Laugarás, Flúðir, Hella, Hvolsvöllur, Vík í Mýrdal, Kirkjubæjarklaustur, Fagurhólsmýri, Egilsstaðir, Ásbyrgi, Reykjahlíð við Mývatn, Laugar í Suður-Þingeyjarsýslu, Brjánslækur, Króksfjarðarnes, Skriðuland, Búðardalur, Reykholt í Borgarfirði, Borgarnes.
    

2. gr.

    Leggja skal flutningsjöfnunargjald á allar olíuvörur, sem fluttar eru til landsins og ætlaðar eru til nota innan lands, sbr. 1. gr., og rennur gjaldið í sérstakan sjóð — flutningsjöfnunarsjóð olíuvara.
    Samkeppnisstofnun, að fenginni tillögu stjórnar flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara, ákveður gjald á olíuvörum skv. 1. mgr. fyrir minnst þrjá mánuði í senn og skal fjárhæð flutningsjöfnunargjalds hvers flokks, sbr. 4. gr., við það miðuð að tekjur af gjaldinu nægi til að greiða flutningskostnað á því magni af framangreindum olíuvörum sem flytja þarf frá næstu innflutningshöfn eða olíuhöfn til þeirra olíuhafna eða verslunarstaða sem jöfnun flutningskostnaðar nær til svo að fullnægt verði eftirspurn eftir þeim olíuvörum sem dreift er þaðan.
    

3. gr.

    Innflytjendur, sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, sbr. 1. gr., skulu reikna og greiða flutningsjöfnunargjaldið til flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara af sölu í hverjum mánuði eigi síðar en á síðasta virkum degi að þremur mánuðum liðnum frá lokum sölumánaðar.
    Aðrir innflytjendur bensíns og olíu, sbr. 1. gr., skulu greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn.
    Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast innheimtu gjaldsins og skulu þeir skila því til flutningsjöfnunarsjóðs.
    

4. gr.

    Greiða skal úr flutningsjöfnunarsjóði olíuvara kostnað við flutning olíu frá innflutningshöfn eða olíuhöfn til þeirra olíuhafna og verslunarstaða sem jöfnun flutningskostnaðar nær til samkvæmt lögum þessum.
    Mynda skal innan flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara sérstaka reikninga fyrir eftirfarandi flokka: 1) bifreiðabensín, 2) gasolíu, 3) aðrar olíur og blöndur til brennslu og 4) flugsteinolíu (þotueldsneyti). Færa skal tekjur af flutningsjöfnunargjaldi hvers flokks á sérstakan reikning og sömuleiðis útgjöld vegna jöfnunar flutningskostnaðar. Stefnt skal að því að ná jafnvægi milli álagðra flutningsjöfnunargjalda og útgjalda vegna flutningsjöfnunar hvers flokks innan almanaksársins.
    

5. gr.

    Ekki má leggja flutningsjöfnunargjald á einn flokk til að greiða flutningskostnað á öðrum flokki skv. 4. gr. Verði tekjuafgangur á reikningum flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara í árslok skal hann yfirfærast til næsta árs. Ef tekjur sjóðsins á almanaksári hrökkva ekki fyrir útgjöldum skal greiða það sem á vantar af fyrstu tekjum sjóðsins næsta ár.
    Nú hrekkur flutningsjöfnunargjald af einum flokki ekki til greiðslu á kröfum þess flokks og skulu þá innstæður á reikningum annarra flokka notaðar til greiðslu þessara krafna til bráðabirgða. Slíkar bráðabirgðagreiðslur skulu endurgreiddar af hækkuðu flutningsjöfnunargjaldi af umræddum flokki á næsta flutningsjöfnunartímabili.
    

6. gr.

    Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara skal skipuð þremur mönnum sem viðskiptaráðherra skipar til tveggja ára í senn. Einnig skal skipa varamenn. Forstjóri Samkeppnisstofnunar eða staðgengill hans er formaður stjórnarinnar, ráðherra skipar einn stjórnarmann án tilnefningar en jafnframt situr í henni einn stjórnarmaður, tilnefndur sameiginlega af þeim olíufélögum, sem annast olíudreifingu í öllum landshlutum, eða meiri hluta félaganna. Þó má viðskiptaráðherra ákveða að í stað eins sameiginlegs fulltrúa sitji í stjórninni einn fulltrúi frá hverju slíku olíufélagi. Olíufélögin sameiginlega eða meiri hluti þeirra fer saman með eitt atkvæði við ákvarðanatöku í stjórn sjóðsins.
    

7. gr.

    Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara og Samkeppnisstofnun sjá um daglegan rekstur og greiðslur á kostnaði við flutningsjöfnun í samræmi við lög þessi, reglur og ákvarðanir stjórnar sjóðsins.
    

8. gr.

    Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara úrskurðar hvað teljast skuli flutningskostnaður. Er stjórninni skylt að ákveða að jöfnun flutningskostnaðar milli innflutningshafnar, olíuhafnar og verslunarstaða skuli takmörkuð við kostnað af þeim flutningsháttum sem ódýrastir eru á hverjum tíma. Enn fremur skal stjórninni heimilt að synja um greiðslu tiltekins kostnaðar úr sjóðnum að hluta til eða að fullu ef stjórnin telur að um misnotkun á jöfnunarkerfinu sé að ræða.
    

9. gr.

    Allur kostnaður af starfsemi flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara greiðist af tekjum sjóðsins og skal tekið tillit til þess við ákvörðun flutningsjöfnunargjalds.
    Fé það sem á hverjum tíma er í flutningsjöfnunarsjóði skal ávaxtað í banka á sérstökum reikningi.
    

10. gr.

    Að undanteknum fyrirmælum um jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum skal um verðlagningu á olíuvörum fara eftir samkeppnislögum, nr. 8 25. febrúar 1993, með síðari breytingum, og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
    

11. gr.

    Viðskiptaráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara. Þar er m.a. heimilt að fella niður flutningsjöfnunargjald af olíuvörum í sérstökum tilvikum sem byggjast á samningum um rekstur olíufrekra iðjuvera hér á landi. Flutningsjöfnunarsjóður jafnar ekki flutningskostnað í slíkum tilvikum. Það er jafnframt heimilt að ákveða að fjölga eða fækka verslunarstöðum sem jöfnun flutningskostnaðar með tankbifreið nær til að fenginni tillögu þar um frá stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
    

12. gr.

    Lög þessi öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar að þremur mánuðum liðnum frá samþykkt þeirra. Jafnframt falla þá úr gildi lög nr. 81 4. júlí 1985, um flutningsjöfnunarsjóð og innflutningsjöfnun olíu og bensíns.
    

Ákvæði til bráðabirgða.

    Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara tekur frá gildistöku laga þessara við eignum og skuldbindingum flutningsjöfnunarsjóðs olíu og bensíns, sbr. lög nr. 81 4. júlí 1985.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Innflutningur á olíuvörum var gefinn frjáls 1. janúar 1992. Sú tilhögun kom í stað fyrirkomulags þar sem innflutningur gasolíu og svartolíu var bundinn leyfum og var í raun stýrt á þann veg að viðskiptaráðuneytið samdi um olíukaup við sovéska ríkisolíufélagið Soyuznefteexport. Var samningurinn síðan framseldur í hendur olíufélaganna þriggja sem starfa hér á landi. Sama fyrirkomulag gilti um bifreiðabensín en því var breytt 1. janúar 1991 þegar Sovétríkin voru ekki lengur aflögufær um þá vöru. Innflutningur á olíuvörum frá Sovétríkjunum stóð frá árinu 1953 og voru innflutningshömlur á olíu frá öðrum framleiðslusvæðum byggðar á útflutningshagsmunum Íslendinga. Aðstæður hafa breyst og því voru innflutningstakmarkanir felldar úr gildi en ákveðið að gefa olíuviðskipti frjáls.
    Verðlagsyfirvöld felldu af þessu tilefni úr gildi hámarksverð á olíuvörum en samkeppnisyfirvöld beita nú ákvæðum nýrra samkeppnislaga nr. 8 frá 25. febrúar 1993 um bann við samráði olíufélaganna um verðlagningu og fleira. Ákvæði eldri laga um innkaupajöfnun hafa misst gildi sitt og þörf er á að fella niður þau ákvæði úr eldri lögum um flutningsjöfnunarsjóð og innkaupajöfnun olíu og bensíns, nr. 81 4. júlí 1985.
    Jafnframt hlýtur jöfnun flutningskostnaðar olíu að koma til endurskoðunar. Í frumvarpi þessu er lagt til að flutningsjöfnun nái til flutnings á olíuvörum sjóleiðis með tankskipi frá innflutningshöfn til olíuhafnar sem getur tekið við olíu gegnum olíuleiðslu frá tankskipi. Olíufélögin geta því komið sér upp nýrri aðstöðu í höfnum landsins eða flutt þá sem er fyrir. Flutningur sjóleiðis getur tekið breytingum í samræmi við eftirspurn í landinu á hverjum tíma. Vegna mismunandi fjarlægðar verslunarstaða og upplands þeirra frá höfnum landsins er nauðsyn á að flutningsjöfnun taki einnig til olíuflutninga á landi með tankbifreiðum til lykilverslunarstaða inni í landi eða verslunarstaða við ströndina þar sem hafnaraðstöðu til móttöku olíuskipa verður ekki komið við. Viðskiptaráðherra er heimilt að fenginni tillögu frá stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara að fjölga eða fækka verslunarstöðum, sem jöfnun flutningskostnaðar á landi með tankbifreiðum nær til, í samræmi við breyttar aðstæður og eftirspurn. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að dreifingarkostnaður innan olíuhafnar, verslunarstaða og nágrennis þeirra greiðist af álagningu olíufélaganna eða dreifingaraðila þeirra eins og verið hefur. Olíufélögin eru í dag með fjölmargar olíuhafnir umhverfis landið og hafa þau með þessu frumvarpi möguleika á að reisa nýjar birgðastöðvar á stöðum sem hagkvæmni sjóflutninga og eftirspurn markaðarins krefst hverju sinni. Fjölmargar olíuhafnir og þeir verslunarstaðir án hafna, sem flutningsjöfnun nær til, tryggja að flutningsjöfnun olíuvara nái til allra hvar sem þeir búa á landinu. Með þessari lagabreytingu er reynt að sníða mestu vankanta af núgildandi flutningsjöfnun samhliða því að tryggja að ákvæði nýrra samkeppnislaga nái að hafa áhrif á verðlagningu og auka samkeppni á milli olíufélaganna í landinu og smásöluaðila þeirra með tilliti til verðs og þjónustu.
    Það er skoðun viðskiptaráðuneytisins að sú einföldun á jöfnun flutningskostnaðar olíuvara, sem hér er lögð til, muni leiða til aukinnar hagræðingar í dreifingu olíuvara og lægri kostnaðar þegar til heildarinnar og framtíðar er litið.
    Lagt er til að afnumið skuli ákvæði í gildandi lögum um að söluverð á olíuvörum skuli vera hið sama til sömu nota hjá hverjum innflytjanda og útsölumönnum hans hvar sem er á landinu. Þetta ákvæði hefur hindrað að sjálfstæðir smásalar með olíuvörur hafi náð fótfestu hér á landi eins og í öðrum nágrannalöndum okkar. Verðlagning dreifingaraðila olíufélaganna hefur verið háð verðlagningu olíufélaganna og þau í raun skammtað þeim álganingu eftir geðþótta, óháð þjónustu og tilkostnaði við smásöluna á hverjum stað. Eðlilegri þróun í smásöludreifingu olíuvara hér á landi hafa því verið takmörk sett hvað varðar afgreiðslumáta, opnunartíma og tengsl við sölu á öðrum vörum.
    Flutningsjöfnunargjald er nú 1,00 kr. af hverjum lítra bensíns sem er 1,55% af söluverði 92 oktana bensíns. Gjaldið af gasolíu er 0,95 kr. á hvern lítra sem er 4,80% af söluverði frá leiðslu. Flutningsjöfnunargjald af svartolíu er 1,00 kr. á hvert kg, þ.e. 7,19% af söluverði olíunnar frá leiðslu.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Lagt er til að jöfnun flutningskostnaðar á olíuvörum nái framvegis til flutningskostnaðar innan lands milli olíuinnflutningshafna og olíuhafna sem geta tekið á móti olíuskipum og jafnframt til ákveðinna lykilverslunarstaða sem eru án viðunandi hafnar. Þetta kemur í stað núgildandi skipunar þar sem jöfnun flutningskostnaðar nær til allra staða hvar sem er á landinu, inni á hálendi eða á ystu nesjum, óháð tilkostnaði við dreifingu olíunnar. Ábyrgð á hagræðingu í dreifingu olíuvara mun færast í auknum mæli á hendur olíufélaganna með nýju fyrirkomulagi og þá um leið lækkar kostnaður við flutningsjöfnunina samhliða aukinni samkeppni.
    

Um 2. gr.

    Hér er lögð til svipuð skipun og verið hefur. Breytt er um nafn á flutningsjöfnunarsjóði til aðgreiningar frá fyrri sjóði og ákvörðun flutningsjöfnunargjalds hvers flokks er lögð í hendur Samkeppnisstofnunar. Flutningsjöfnun olíuvara nær nú einungis til flutninga frá olíuinnflutningshöfn til olíuhafnar sjóleiðis, svo og flutninga á landi frá olíuinnflutningshöfn eða næstu olíuhöfn til tiltekinna verslunarstaða. Dreifingaraðilar á viðkomandi olíuinnflutningshöfn, olíuhöfn eða á þeim verslunarstöðum, sem um getur í 1. gr., skulu tryggja að eftirspurn frá stöðunum sé fullnægt á þeim olíuvörum sem dreift er þaðan.
    

Um 3.–5. gr.

    Greinar þessar þarfnast ekki skýringar.
    

Um 6. gr.

    Í þessari grein er í aðalatriðum byggt á núverandi ákvæðum um skipun stjórnar flutningsjöfnunarsjóðs. Tekið er þó mið af því sem tíðkast hefur að fulltrúar olíufélaganna þriggja hafa setið í stjórn sjóðsins. Eru sett skýr ákvæði um meðferð atkvæðisréttar í þessu sambandi. Þá er gert ráð fyrir skipun varamanna í stjórnina.
    

Um 7. gr.

    Lagt er til að Samkeppnisstofnun ásamt stjórn annist rekstur og greiðslur úr flutningsjöfnunarsjóði olíuvara eftir reglum sem stjórn sjóðsins setur. Í eldri lögum, sem hafa verið felld úr gildi, annaðist Verðlagsstofnun þennan þátt.
    

Um 8.–9. gr.

    Greinar þessar þarfnast ekki skýringar.
    

Um 10. gr.

    Í þessari grein er ítrekað að samkeppnislög, nr. 8 frá 25. febrúar 1993, gilda um olíuviðskipti með því fráviki sem af jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum leiðir. Það er því í höndum samkeppnisráðs og Samkeppnisstofnunar að fjalla um verðlagningu og samkeppnisaðstæður við sölu á olíuvörum.
    

Um 11. gr.

    Grein þessi þarfnast ekki skýringar að öðru leyti en því að samkvæmt samningum um álverið í Straumsvík skal það undanþegið álagningu flutningsjöfnunargjalds af olíuvörum. Árlega flytur álverið inn nokkurt magn af olíuvörum til starfsemi sinnar og þykir æskilegt að hafa almenna heimild til að gera ráð fyrir slíkum samningsbundnum undanþágum í reglugerð. Viðskiptaráðherra er jafnframt heimilt að ákveða nýja verslunarstaði sem jöfnun flutningskostnaðar nær til með tankbifreið að fenginni tillögu frá stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
    

Um 12. gr.

    Til hagræðis og til að auðvelda breytingu á flutningsjöfnun samkvæmt þessum lögum er mælt með því að gildistaka laganna miðist við fyrsta dag næsta mánaðar að þremur mánuðum liðnum frá samþykkt þeirra svo að nægur tími gefist til að undirbúa framkvæmd þeirra.
    

Um ákvæði til bráðabirgða.

    Lagt er til að flutningsjöfnunarsjóður olíuvara taki við eignum og skuldbindingum flutningsjöfnunarsjóðs olíu og bensíns.


Fylgiskjal.
    
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.

    Verði frumvarpið að lögum er því ætlað að koma í stað laga nr. 81/1985, um flutningsjöfnunarsjóð og innkaupajöfnun olíu og bensíns. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að jöfnun flutningskostnaðar á olíuvörum nái eftirleiðis til flutningskostnaðar innan lands milli olíuflutningshafna og olíuhafna sem geta tekið á móti olíuskipum og jafnframt til ákveðinna lykilverslunarstaða sem eru án viðunandi hafnar. Samkvæmt núgildandi skipan nær jöfnun flutningskostnaðar til allra staða hvar sem er á landinu. Þeir staðir sem flutningskostnaðarjöfuninni verður ætlað að ná til eru tilgreindir í 1. gr. frumvarpsins, en viðskiptaráðherra fær heimild í 11. gr. þess til að breyta þessu fyrirkomulagi.
    Í 5. gr. núgildandi laga frá 4. júlí 1985 segir að allur kostnaður af starfsemi flutningsjöfnunarsjóðs greiðist af eigin fé og skal tekið tillit til þessa kostnaðar við ákvörðun flutningskostnaðargjaldsins. Áþekkt ákvæði er í 9. gr. frumvarpsins. Hér er því ekki gert ráð fyrir að ríkissjóður verði fyrir fjárútlátum vegna þessarar starfsemi og er það óbreytt. Hins vegar má gera ráð fyrir að mismunur geti orðið á verði þessara vara eftir því hvar sala þeirra fer fram á landinu.