[13:57]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Frú forseti. Ég tel að þetta verði málinu ekki til frekari trafala þó að það hafi valdið nokkurri töf á frágangi málsins. Ég óskaði eftir því við þá embættismenn sem að þessu vinna í morgun að þeir gerðu hv. allshn. þingsins grein fyrir stöðu málsins þannig að hún gæti fylgst með framvindunni og þeirri vinnu sem unnið hefur verið að í þessu sambandi í ráðuneytinu.