Yfirtökutilboð

99. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 16:30:06 (4514)


[16:30]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegur forseti. Þessi sjónarmið eiga fullan rétt á sér en ég minni bara á að Alþingi afgreiddi þetta mál fyrir örfáum vikum og afgreiddi það, eftir því sem ég best veit, samhljóða og án ágreinings þannig að það yrði þá að taka málið upp að nýju. ( MB: Afgreiddi það að hluta.)