Tryggingagjald

100. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 18:22:37 (4549)


[18:22]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 691 frá efh.- og viðskn um frv. til laga um breytingu á lögum, nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn Braga Gunnarsson lögfræðing fjmrn.
    Nefndin mælir með því að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem eru á þskj. með sama númeri og þeim rökstuðningi sem þar fylgir. Undir þetta rita allir nefndarmenn.