Jarðhitaréttindi

3. fundur
Miðvikudaginn 05. október 1994, kl. 14:21:59 (53)


[14:21]
     Flm. (Hjörleifur Guttormsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég skal ekki taka af um það efni sem hv. þm. gerði athugasemd við. Ég hafði litið svo til að þessi frestur væri að renna út, en það væri betur að það væri rétt, sem ég ætla ekki að vefengja, að það sé næsta ár sem við höfum í þessum efnum. En það er auðvitað nákvæmlega þess vegna ástæða til þess hér og nú á þessu þingi að setja löggjöfina.