Hjálmar Jónsson fyrir VE

7. fundur
Miðvikudaginn 12. október 1994, kl. 13:33:15 (260)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dagsett 11. okt. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísað til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v., Hjálmar Jónsson prófastur, Sauðárkróki, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Vilhjálmur Egilsson, 5. þm. Norðurl. v.``


    Hjálmar Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.