Vernd Breiðafjarðar

35. fundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1994, kl. 13:55:16 (1599)


[13:55]
     Pétur Bjarnason (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara að leggja mat á ávirðingar hæstv. umhvrh. eða meta þær og vega hver á móti annarri. Það verða aðrir að gera. En ég vil þrátt fyrir þau rök sem fram hafa komið ítreka þetta, að ég tel útilokað annað, hversu lítil sker sem þetta eru, þar sem þau heyra undir þessa héraðsnefnd, en það verði rætt við hana.
    Annað sem ég vil minna á, hvort sem það kemur fram nú eða síðar, það er vörsluáætlun. Það getur svo sem sem best beðið, en ég hefði viljað fá aðeins betri skýringu á því.