Staðgreiðsla af launum blaðsölubarna

39. fundur
Mánudaginn 21. nóvember 1994, kl. 18:19:53 (1791)


[18:19]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegur forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að blanda mér í þessa umræðu en ég tel að það sé kannski ekki beint smekklegt að gefa það í skyn hér í lokaræðu hæstv. ráðherra að fyrrv. ráðherra fjmrh. hafi væntanlega gefið blöðunum það í skyn að þau þyrftu ekkert að borga skattinn. Ég held að það væri viðkunnanlegra að halda þessu fram ef ráðherrann vill að viðkomandi þingmanni viðstöddum. Þetta er náttúrlega býsna mikil yfirlýsing. ( Fjmrh.: Ég hef gert það.)