Málefni Iðnlánasjóðs

41. fundur
Miðvikudaginn 23. nóvember 1994, kl. 13:49:18 (1870)

[13:49]
     Iðnaðarráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég hef þegar svarað hinu síðar atriði. Um hið fyrra atriði er það að segja að viðskrh. lætur ekki í té opinberlega upplýsingar um ráðstafanir lánasjóða eða banka eða stofnana ef það brýtur í bága við lög.