Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að borist hefur bréf frá þingflokki Alþfl. þar sem tilkynnt er um eftirfarandi mannaskipti í nefndum, sbr. 16. gr. þingskapa:
Utanrmn. Guðmundur Árni Stefánsson kemur í stað Rannveigar Guðmundsdóttur. Í efh.- og viðskn. kemur Guðmundur Árni Stefánsson í stað Rannveigar Guðmundsdóttur. Í allshn. kemur Guðmundur Árni Stefánsson í stað Gísla S. Einarssonar og í félmn. kemur Sigbjörn Gunnarsson í stað Rannveigar Guðmundsdóttur.