Lyfjaverslun Íslands hf.

50. fundur
Þriðjudaginn 06. desember 1994, kl. 21:23:13 (2256)


[21:23]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Það er áreiðanlega hentugt fyrir hæstv. fjmrh. að vera svona viss um sannleikann. Ekki var Pílatus alveg með hann á hreinu en hæstv. fjmrh. er alveg með hann á hreinu. Hann heldur því fram að það hafi ekkert verið athugavert við söluna á Geir goða og það er hraustlega mælt.
    Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að þau hlutafélög eru til í landinu þar sem er þingkjörin stjórn, en ekki hefur það verið línan hjá hæstv. núv. ríkisstjórn. Það er kannski rétt að taka það fram að þegar ég tók fyrst sæti í stjórn Landsvirkjunar þá sat hér að vísu ríkisstjórn sem ég studdi.