Tekjuskattur og eignarskattur

59. fundur
Fimmtudaginn 15. desember 1994, kl. 16:49:39 (2764)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Þá tekur til máls hæstv. fjmrh. ( Fjmrh.: Er umræðan búin?) Var ekki hæstv. ráðherra á mælendaskrá? ( Fjmrh.: Jú.) Það eru ekki aðrir á mælendaskrá. ( Fjmrh.: Tala ég ekki bara í 2. umr.?) ( KÁ: Er ráðherrann að gefast upp?) Forseti hlýtur að óska eftir svari frá hæstv. ráðherra um hvort hann ætlar að ljúka umræðunni. ( Fjmrh.: Ég hef engar sérstakar áætlanir þar um en ef það kostar einhver læti þá tala ég náttúrlega.) Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs.