Útflutningur hrossa

65. fundur
Þriðjudaginn 20. desember 1994, kl. 17:28:22 (2955)



[17:28]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Varðandi stóðhestastöðina er ekki annað að segja en það að stjórn stóðhestastöðvarinnar hefur beint því til landbrh. að skipa sérstaka nefnd sem geri úttekt á rekstri stöðvarinnar og leggi fram tillögur nú á næstu mánuðum um það hvernig framtíðarrekstri og tilgangi stöðvarinnar skuli háttað. Ég geri ráð fyrir því að sú nefnd verði skipuð milli jóla og nýárs og að hún muni ljúka störfum eigi síðar en í endaðan apríl.