Fjárlög 1995

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 23:57:51 (3119)


[23:57]
     Árni Johnsen (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er leitt hvernig hv. stjórnarandstæðingar rugla hér saman málum hver á fætur öðrum og gott dæmi er hv. þm. Jón Kristjánsson, sem ruglaði hér saman amöbum og karfaseiðum og ýmsu á því sviði. En það er rétt að ítreka það, og ég vil leiðrétta hv. þm., að tillaga um karfarannsóknir er í fjárlagafrv. 1995 og ætti að geta gengið að óskum, enda mun hæstv. sjútvrh. tryggja framgang málsins.