Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 00:18:24 (3127)


[00:18]
     Árni Johnsen (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil, aldrei þessu vant, taka undir flest það sem hv. þm. Guðni Ágústsson sagði og allur hans málflutningur undirstrikar það auðvitað að það er mjög mikilvægt að koma þessari stöð á laggirnar, sem fræðslu- og rannsóknamiðstöð og vona ég að menn geti gengið af fundi sáttir um það.