[19:59]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Það er óhjákvæmilegt að ganga frá þessu láni. Þannig var gengið frá því í tíð síðustu ríkisstjórnar að Hríseyjarhreppi var gefið um það fyrirheit og bindandi loforð að ríkissjóður mundi bera ábyrgð á láninu og standa skil á afborgunum og vöxtum og það dugir ekki annað en horfast í augu við gerðan hlut.