Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 28 . mál.


28. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um skuldir Vegasjóðs.

Frá Ragnari Elbergssyni og Steingrími J. Sigfússyni.



    1.    Hverjar verða heildarskuldir Vegasjóðs um næstkomandi áramót vegna sérstaks framkvæmdaátaks í atvinnumálum á þessu kjörtímabili, að meðtöldum lántökum á yfirstandandi ári, framreiknað á núgildandi verðlagi?
    2.    Hvernig skiptast lántökurnar á einstök ár?
    3.    Hvernig hefur verið staðið að lántökum, hver eru lánskjör og skilmálar?
    4.    Hvernig verður endurgreiðslum háttað, á hvaða árum verða endurgreiðslurnar og hverjar verða þær í heild, sundurliðað á einstök ár, að meðtöldum öllum kostnaði?


Skriflegt svar óskast.