Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 280 . mál.


347. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 86/1991, um breytingu á lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjón ustu, sbr. lög nr. 110/1992 og lög nr. 128/1993.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



1. gr.


    Eftirtaldar breytingar verða á 1. gr. laganna (1. tölul. ákvæða til bráðabirgða):
     a .     Í stað ártalsins „1994“ í 1. málsl. kemur: 1995.
     b .     Í stað orðanna „1. janúar 1995“ í 4. málsl. kemur: 1. janúar 1996.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða í lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, var gert ráð fyrir að frá og með 1. janúar 1991 yrði heilsugæslustarfi í Reykjavík og starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur þannig háttað að lög nr. 44/1955, heilsuverndarlög, sbr. lög nr. 28/1957, yrðu óþörf og féllu því úr gildi. Hins vegar vannst ekki tími til að ganga frá nauðsynlegum breytingum á heilbrigðisþjónustulögunum varðandi starfsemi Heilsu verndarstöðvarinnar fyrir árslok 1991 og var því með lögum nr. 86/1991 veittur eins árs frestur til viðbótar því sem upphaflega var ákveðið í lögunum. Í heilbrigðis- og trygginga málaráðuneytinu er nú unnið að endurskoðun frumvarpsins, en fyrir liggur að ekki verður unnt að afgreiða það fyrir áramót. Því er með þessu frumvarpi lagt til að bráðabirgða ákvæði laganna um heilbrigðisþjónustu verði breytt á þann veg að veittur verði eins árs frestur til viðbótar til að ganga frá lögum um framtíðarhlutverk Heilsuverndarstöðvarinnar.