Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 351 . mál.
573. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um sameiningu og samstarf Alþýðuskólans á Eiðum og Menntaskólans á Egilsstöðum.
Frá Hermanni Níelssyni.
1 . Hvert er hlutverk þeirrar nefndar sem ráðherra skipaði nýverið til þess að vinna að samstarfi framhaldsdeildanna á Eiðum og Menntaskólans á Egilsstöðum?
2 . Hver er afstaða ráðherra til samnýtingar á kennsluhúsnæði og kennslu?
3 . Hvernig eru samskiptin hugsuð með tilliti til kennslu í áföngum, kjarnagreinum og valgreinum?
4 . Hvenær mun ákvörðun um samstarf skólanna liggja fyrir með tilliti til kennslu í haust?
5 . Hver verður staða Alþýðuskólans á Eiðum ef ekki verður af því samstarfi sem nú er í undirbúningi?