Ferill 357. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 357 . mál.


580. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um iðnhönnun.

Frá Sturlu Böðvarssyni.



     1 .     Með hvaða hætti hefur iðnaðarráðuneytið stuðlað að eflingu iðnhönnunar í tengslum við framleiðsluiðnað?
     2 .     Hefur iðnaðarráðuneytið stuðlað að styrkveitingum í því skyni að efla iðnhönnun?
     3 .     Liggja fyrir áætlanir um með hvaða hætti iðnhönnun verði efld í samstarfi opinberra aðila og samtaka iðnaðarins?