Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 239 . mál.


787. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992.

(Eftir 2. umr., 23. febr.)



1. gr.


    Í stað „11. gr.“ í 2. gr. laganna kemur: 10. gr.

2. gr.


    Við 2. mgr. 5. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
    6. Skíðalyftur.
    

3. gr.


    6. gr. laganna fellur brott.

4. gr.


    Orðin „og 6. gr.“ í 9. gr. laganna falla brott.

5. gr.


    3. tölul. 10. gr. laganna fellur brott.
    

6. gr.


    Eftirtaldar breytingar verða á 11. gr. laganna:
     a .     2. tölul. verður svohljóðandi: Af munum sem vátryggðir eru skv. 1.–5. tölul. 2. mgr. 5. gr., 0,20‰.
     b .     3. tölul. verður svohljóðandi: Af munum, sem vátryggðir eru skv. 6. tölul. 2. mgr. 5. gr., reiknast iðgjald eftir reglum sem stjórn stofnunarinnar setur.
     c .     Orðin „og 6. gr.“ í 4. mgr. falla brott.

7. gr.


    Á eftir 1. málsl. 21. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Enn fremur er stjórninni heimilt að veita styrki til fræðslu- og þjálfunarmála þeirra landssamtaka sem hafa samstarfs samning við Almannavarnir ríkisins um skipun hjálparliðs.

8. gr.


    Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Á árinu 1995 skal stjórn Viðlagatryggingar Íslands greiða Ísafjarðarkaupstað 90 milljónir króna í bætur vegna tjóns sem varð á skíðalyftum á Ísafirði í snjóflóðum veturinn 1994.

9. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.