Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að hæstv. sjútvrh. hefur óskað eftir að mega tala fyrir 6. og 7. dagskrármáli samtímis og verður orðið við þeirri beiðni ef ekki er hreyft athugasemdum.
Þá hefur komið fram ósk frá þingflokki Alþfl. um að ræðutími verður tvöfaldaður og verður svo gert.