Þingfararkaup

27. fundur
Fimmtudaginn 15. júní 1995, kl. 19:38:19 (1018)


[19:38]

     Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Einarsson) :
    Herra forseti. Frv. það sem er verið að fjalla um er lagt fram af forsvarsmönnum allra þingflokka á Alþingi fyrir utan Þjóðvaka. Þingmenn Þjóðvaka hafa á engan hátt tekið þátt í samningu frv. Ætlun flutningsmanna, forustumanna hinna þingflokkanna, er að afgreiða málið á nokkrum klukkustundum nú í dag. Það eru ekki góð vinnubrögð í þessu máli. Þjóðvaki telur flest mál brýnni í þjóðlífinu en að festa í lög ákvörðunarvald alþingismanna um hluta af eigin launakjörum. Þingmenn Þjóðvaka telja að óháður aðili eins og Kjaradómur eigi að ákveða allt sem viðvíkur launamálum og þingfararkostnaði alþingismanna. Sú regla á að gilda að alþingismenn komi ekki að slíkum ákvörðunum.
    Launakjör alþingismanna eru ávallt viðkvæmt efni í okkar þjóðlífi og fullur trúnaður verður að ríkja milli alþingismanna og fólksins í landinu, m.a. um launa- og starfskjör þingmanna.
    Í 2. mgr. 9. gr. er kveðið á um að endurgreiða skuli alþingismönnum annan starfskostnað samkvæmt reglum forsætisnefndar. Heimilt er að greiða starfskostnað samkvæmt þessari málsgrein sem fasta fjárhæð í stað endurgreiðslna samkvæmt reikningum. Þingflokkur Þjóðvaka telur óeðlilegt að forsætisnefnd fái svo víðtæka heimild, sérstaklega í ljósi ákvæða 16. gr. frv. um skattfrelsi slíkra greiðslna. Þingflokkur Þjóðvaka leggst eindregið gegn þessu ákvæði frv.
    Í 16. gr. frv. er gert ráð fyrir að greiðsla þingfararkostnaðar sé framtalsskyld en ekki skattskyld. Það orkar mjög tvímælis að greiðslur ákveðnar af forsætisnefnd séu ekki skattskyldar og þar með óháðar skattalegu mati ríkisskattstjóra. Þingflokkur Þjóðvaka leggst eindregið gegn þessu ákvæði frv.
    Þingflokkur Þjóðvaka tekur að öðru leyti ekki þátt í afgreiðslu málsins.