Kristín Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Mér virðist á þessum svörum að það séu frekar lítil líkindi til þess að við höldum nytinni í kúnni. Þar að auki vil ég segja sem viðbragð við hinu svari hæstv. ráðherra að það verður greinilega hið huggulegasta kaffisamsæti, aðalfundurinn í Pósti og síma hf.