Bryndís Guðmundsdóttir fyrir KH

Fimmtudaginn 07. mars 1996, kl. 10:34:30 (3671)

1996-03-07 10:34:30# 120. lþ. 103.98 fundur 215#B varam. Bryndís SK RN#, Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur

[10:34]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Borist hefur eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Samtaka um kvennalista í Reykjaneskjördæmi, Bryndís Guðmundsdóttir kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn.``

Kjörbréf Bryndísar Guðmundsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því nú, skv. 2. gr. þingskapa, að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.