Mannanöfn

Þriðjudaginn 12. mars 1996, kl. 15:36:49 (3825)

1996-03-12 15:36:49# 120. lþ. 105.4 fundur 73. mál: #A mannanöfn# (heildarlög) frv. 45/1996, HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur

[15:36]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla út af fyrir sig ekki að lasta það neitt sértaklega að málið kemur hér til 2. umr. þó ég hefði kosið að sjá það í verulega öðrum búningi en liggur fyrir. Mér sýnist sem hv. þingnefnd hafi, ef marka má nál., ekki leitað víða fanga að því er varðar viðmælendur t.d. varðandi málið. Ég hef ekki kannað umsagnir um þingmálið sem var vitnað til nokkurra hér áður í ræðu. En um þetta er ekki að fást úr því sem komið er. Málið liggur fyrir og sú kynning sem fram hefur farið á málinu af hálfu þeirra sem bera það fram og mótuðu frv. á sínum tíma er góðra gjalda verð en breytir ekki því að álitaefnin hrannast upp.