Íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins

Föstudaginn 12. apríl 1996, kl. 10:59:09 (4614)

1996-04-12 10:59:09# 120. lþ. 117.2 fundur 394. mál: #A íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins# (leiga, sala embættisbústaða o.fl.) frv., SvG (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur

[10:59]

Svavar Gestsson (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég styð það að málið haldi áfram og fái þinglega meðferð. Ekki síst er nauðsynlegt að það komi fram að ég standi að þessu ásamt fleiri stjórnarandstæðingum vegna þess að í húsinu eru núna aðeins 24 stjórnarsinnar.