Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. orðaði það svo að það hlyti að fara þannig að lífsrými annarra yrði þrengt. Það er nákvæmlega kjarni málsins. Hann hélt því líka fram í ræðu sinni áðan að þetta væri ekki tekið frá neinum. Ég verð því að biðja hv. þm. að útskýra þetta fyrir mér, þetta skil ég ekki.