Fyrsti vaxtadagur húsbréfa

Mánudaginn 15. apríl 1996, kl. 15:15:05 (4705)

1996-04-15 15:15:05# 120. lþ. 118.2 fundur 242#B fyrsti vaxtadagur húsbréfa# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur

[15:15]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég tel eðlilegt að menn greiði vexti frá þeim tíma sem fjármunir koma þeim í hendur, ekki frá einhverjum degi í fortíðinni og ég er tilbúinn að beita mér fyrir því við Húsnæðisstofnun að þessum reglum verði breytt. Mér finnst þær vera óvenjulegar og ég þakka hv. þm. fyrir að hreyfa þessu máli.