Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Þetta eru aumar afsakanir hv. þm. og ég verð að segja að menn hjá Alþfl. hefðu þá mátt skoða málin betur fyrir fjórum árum. Hins vegar greinir okkur á um hvort hér sé um skrásetningargjald eða skólagjald að ræða og um það erum við einfaldlega ekki sammála.