Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Ég vil benda á að um það mál sem er næsta mál á dagskrá er pólitísk samstaða í þinginu og sameiginlegu nefndaráliti úr menntmn. var skilað þannig að ég vil beina því til forseta og þingmanna að við getum haft þá umræðu hér í dag jafnvel þó að menntmrh. sé fjarstaddur.