Kristín Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Við hæstv. samgrh. höfum e.t.v. ekki haft aðgang að sömu upplýsingum. Ég er vitna til funda í hv. samgn. og fjölda álita sem við höfum fengið þar sem fulltrúar starfsfólks komu á fund nefndarinnar og staðfestu það sem stóð í álitum frá félögunum. Það var margítrekað í samræmi við fulltrúa samgn. að samráði hefði verið ábótavant og af einhverjum ástæðum telur starfsfólk sig vera í mikilli óvissu með framtíð sína hjá þessu fyrirtæki.