Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Hér er um að ræða lokatilraun til að forða því slysi sem lögfesting þessa makalausa frv. yrði. Frv. sem er í raun ófrágengið um flest og um flest sem frágengið er ríkir ósætti. Ég styð þá tillögu sem fram er komin um að vísa frv. frá. Ég segi já.