Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Þriðjudaginn 04. júní 1996, kl. 16:17:17 (7220)

1996-06-04 16:17:17# 120. lþ. 160.3 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 160. fundur

[16:17]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hér er verið að búa í haginn fyrir einkavæðingu á Pósti og síma sem engin rök standa til. Við afgreiðslu málsins hafa öll eðlileg samskipti við starfsfólk Pósts og síma verið hunsuð. Hér eru líka sett í uppnám réttindi, kjör og starfsöryggi 2.500 starfsmanna hjá Pósti og síma sem standa í fullkominni óvissu um réttindi sín og kjör. Þetta er eftir öðru hjá þessari ríkisstjórn þegar launþegar eiga í hlut. Ég segi nei.