Gilsfjarðarbrú

Mánudaginn 16. október 1995, kl. 15:30:20 (296)

1995-10-16 15:30:20# 120. lþ. 10.1 fundur 38#B Gilsfjarðarbrú# (óundirbúin fsp.), GE
[prenta uppsett í dálka]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. svörin. Hann boðaði það nánast að hann ætlar að mæta í september 1997 með skærin á borðann á Gilsfjarðarbrú, en ég spurði hvenær útboð eigi að fara fram og hvenær verkframkvæmd eigi að hefjast og ég vek athygli á því að það kom ekki svar við þeim spurningum.