Jónas Hallgrímsson fyrir HÁs

Miðvikudaginn 01. nóvember 1995, kl. 13:33:13 (560)

1995-11-01 13:33:13# 120. lþ. 23.91 fundur 55#B varamenn#, Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur


[13:33]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Borist hefur eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.

Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``

Kjörbréf Jónasar Hallgrímssonar hefur þegar verið samþykkt. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkominn til starfa á ný.