[15:21]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég ítreka að það er ekki ágreiningur milli okkar um að það þarf að eyða óvissu í þessu efni. En ég bendi á í þessu sambandi að það eru útvegsmennirnir sjálfir sem kusu að taka þetta mál upp með ályktun og ég neitaði að sjálfsögðu ekki að ræða við þá um þá ályktun. En það er alveg ljóst að málið kemur upp vegna þess að þeir kusu sjálfir að setja málið fram með þessum hætti.