Verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Miðvikudaginn 22. nóvember 1995, kl. 15:35:35 (1213)

1995-11-22 15:35:35# 120. lþ. 39.12 fundur 166. mál: #A verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar# þál., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur


[15:35]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. kemur nú ögn nær sannleikanum en áður. Það er laukrétt að hann kom ekki með tillögur um lausn á vandanum sem fallist var á vegna þess að hans tillögur voru ekki raunhæfar í málinu. Ég heyri að hv. þm. Ólafur Ragnar hlær nú glaðlega. Fjárhagsvandi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eitt með öðru sem hann skildi eftir sig þegar hann fór úr sínum stól og er vissulega ástæða til þess að rifja þetta mál upp frekar síðar.