1995-12-04 15:31:37# 120. lþ.#F 51.#91. fundur. Varamenn taka þingsæti., til 15:33:51| L gert 5 15:11
[prenta uppsett í dálka]

Varamenn taka þingsæti.

[15:31]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):


Forseti las eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Drífa Jóna Sigfúsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Siv Friðleifsdóttir, 4. þm. Reykn.``

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþm. Framsfl. í Austurl. getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi, taki 2. varaþm. flokksins í Austurlandskjördæmi, Kristjana Bergsdóttir kennari, sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``

,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Halldórs Ásgrímssonar, 1. þm. Austurl., á næstunni sem 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi.

Virðingarfyllst, Jónas Hallgrímsson.``

Kristjana Bergsdóttir, 1. þm. Austurl., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.

[15:32]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):