Petrína Baldursdóttir fyrir GÁS

Miðvikudaginn 06. desember 1995, kl. 13:31:37 (1619)

1995-12-06 13:31:37# 120. lþ. 54.91 fundur 127#B x#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur


[13:31]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Petrína Baldursdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður tilkynnt hér með, herra forseti.

Guðmundur Árni Stefánsson, 9. þm. Reykn.``

Petrína Baldursdóttir hefur áður átt sæti á Alþingi og kjörbréf hennar samþykkt. Er hún boðin velkomin til starfa.