Tilkynning um tilhögun þingfunda 12. des.

Mánudaginn 11. desember 1995, kl. 15:05:45 (1820)

1995-12-11 15:05:45# 120. lþ. 59.91 fundur 133#B tilkynning um tilhögun þingfunda 12. des.#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur


[15:05]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill geta þess við upphaf þessa fundar að áformað er að þingfundur hefjist ekki fyrr en kl. 2.30 á morgun og það er gert til þess að skapa nefndunum rýmri tíma til fundahalda.

Þá er þess að geta að samkomulag er um það meðal formanna þingflokka að kl. 2.30 á morgun fari fram utandagskrárumræða um fíkniefna- og ofbeldisvandann. Gert er ráð fyrir að umræðan standi í eina og hálfa klukkustund og reikna má með tveimur fundum á morgun.