[16:46]
Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég vil enn spyrja: Ef sú staða kæmi upp um næstu áramót að það væri vilji framkvæmdarvaldsins að skera verulega niður fjárveitingar til háskólans þannig að Háskóli Íslands sæi sig tilneyddan til að hækka þessi gjöld upp í 100.000 kr., væri þá mögulegt að mati hæstv. menntmrh. að samþykkja þá tillögu?